Lanolin Wool | A4.is

Lanolin Wool

Lanolin Wool

Dale hefur lengi verið þekkt fyrir að framleiða hágæðagarn og Lanolin Wool er þar engin undantekning, enda einstaklega mjúkt og þægilegt; hlýtt og andar vel. Ullin er unnin með það í huga að halda sem mestu af náttúrulegu lanólíni hennar, vaxkenndu efni sem þekur húð og ull sauðfés og verndar það gegn raka, vindi og veðri.

Lanólín er mikið notað í smyrsl og áburði þar sem það er mýkjandi og því hentar Lanolin Wool vel fyrir viðkvæma húð.

Ráðlögð prjónastærð: 4
Prjónfesta til viðmiðunar: 22 lykkjur sléttprjón á prjóna nr. 4 = 10 cm

Lanolin Wool má þvo við mest 30°C á ullarprógrammi, án mýkingarefnis, og best er að leggja flíkina til þerris eftir þvott.

Í hvaða verkefni hentar Lanolin Wool?

Í hvaða verkefni hentar Lanolin Wool?

Útivistarfatnað: Lanolin Wool andar vel en heldur jafnframt heitu og auk þess hrindir lanólínið í ullinni frá sér vatni sem gerir það að verkum að garnið er frábær kostur fyrir fatnað sem þarf að þola íslenska veðráttu. Þannig er tilvalið að prjóna úr Lanolin Wool til dæmis sokka, peysur, vettlinga og húfur.

Barnaföt: Þar sem Lanolin Wool er mjúkt ullargarn hentar það einstaklega vel fyrir barnahúð svo það er kjörið að prjóna úr því til dæmis barnapeysur, -sokka og -skó.

Teppi: Hvort sem ætlunin er að gefa litlu kríli fallegt, hlýtt og mjúkt teppi eða hekla teppi fyrir útileguna eða sjónvarpssófann er Lanolin Wool yndislegt garn í verkið.

Litir

Litir

Lanolin Wool kemur í fjölbreyttu og fallegu litaúrvali þar sem má finna bæði náttúrulega og klassíska tóna; jarðliti í brúnum og grænum tónum, hlutlausa liti í hvítum, gráum og svörtum tónum og björtum litum eins og rauðum, bláum, bleikum og gulum tónum.