A4 og Kubbabúðin frysta verð á öllum vörum | A4.is

A4 og Kubbabúðin frysta verð á öllum vörum til áramóta

Við hjá A4 og Kubbabúðinni höfum ákveðið að frysta verð á öllum vörum til og með 31. desember 2026. Með ákvörðuninni svörum við ákalli atvinnulífsins um aukið aðhald í verðlagningu og leggjum okkar af mörkum til aukins stöðugleika í efnahagslífinu.
 
Á undanförnum misserum hefur verðbólga haft áhrif á heimili, fyrirtæki og stofnanir um allt land. Við teljum mikilvægt að fyrirtæki taki þátt í því sameiginlega verkefni að stuðla að lægri verðbólgu.
 
Með þessu viljum við veita fjölskyldum, fyrirtækjum og opinberum aðilum aukinn fyrirsjáanleika á tímum þar sem stöðugleiki skiptir miklu máli, ekki síst þegar mörg heimili standa frammi fyrir auknum útgjöldum í aðdraganda jólanna.
 
Verðfrystingin nær til alls vöruúrvals A4 og Kubbabúðarinnar og gildir til og með 31. desember 2026.