Þú þarft ekki að vita allt! | A4.is

Tíminn er á þrotum!

Tíminn er á þrotum!

Time´s Up! Party er frábært partíspil og vinsælt um allan heim. Hér er Time´s Up! Party á íslensku og ólíkt öðrum spurningaspilum þarf enginn að vera alvitur til að geta spilað. Það þarf bara að beita dálitlum klókindum, hafa einbeitinguna í lagi og leggja á minnið.

Time´s Up! Party er spilað í liðum yfir 3 umferðir og í hverri umferð reyna liðin að giska rétt á eins mörg spjöld og hægt er.

Fyrir 12 ára og eldri
Fjöldi leikmanna: 4-12
Spilatími: 40 mínútur
Höfundur: Peter Sarrett
CE-merkt

Hvernig er spilað?

Hvernig er spilað?

Aðferð: Veljið hvorn litinn á að spila með og deilið svo 40 spilum á milli leikmanna. Allir líta á spilin sín í laumi svo hinir sjái ekki á þau. Ef eitthvert spil er of flókið t.d. eða þið þekkið ekki orðið sem stendur á spilinu, má skipta því út og fá nýtt í staðinn. Þegar allir hafa lesið á sín spil er búinn til stokkur með öllum 40 spilunum. Stokkið spilin og ákveðið svo hvaða lið byrjar.

Umferð 1 - lýsið: Leikmaður hefur 30 sekúndur til að segja hvað sem hann vill til að lýsa því sem er á spilinu hans og liðið hans giskar á hvað það er. Þegar það tekst er spilið sett á borðið svo það snúi upp og leikmaðurinn lýsir næsta spili.

Umferð 2 - eitt orð: Takið spilin 40 úr síðustu umferð og stokkið þau aftur. Nú má bara segja eitt stakt orð og liðið má bara giska einu sinni. Umferð 3 - látbragð: Takið spilin 40 úr síðustu umferð og stokkið þau aftur. Nú má bara gefa vísbendingar með látbragði.

Liðið sem giskaði á fleiri spil yfir umferðirnar þrjár stendur uppi sem sigurvegari.