Innköllun á sandlímmiðum frá James Galt Ltd
Mikilvæg öryggistilkynning til viðskiptavina
Mikilvæg öryggistilkynning til viðskiptavina
Innköllun á sandlímmiðum frá James Galt Ltd
A4 vill vekja athygli á innköllun á sandlímmiðum frá framleiðandanum James Galt Ltd. Prófanir hafa leitt í ljós að sandurinn í vörunni getur innihaldið asbest, sem er bannað efni og getur verið hættulegt heilsu, jafnvel við litla útsetningu.
Varan var seld hjá A4 á tímabilinu febrúar 2023 til september 2025.
Við biðjum viðskiptavini sem hafa keypt vöruna að:
Hætta notkun hennar tafarlaust og farga henni á öruggan hátt.
Einnig er hæg að skila vörunni til okkar til að fá nánari upplýsingar um endurgreiðslu og örugga förgun.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og leggjum áherslu á að öryggi viðskiptavina okkar sé ávallt í forgangi.
Nánari upplýsingar veitir þjónustuver A4 í netfanginu a4@a4.is eða í síma 580-0000