Er ágiskunin rétt eða taparðu? | A4.is

Er heppnin með þér í liði?

Er heppnin með þér í liði?

HILO er einfalt og skemmtilegt spil fyrir 8 ára og eldri sem er tilvalið fyrir fjölskylduna eða vinahópinn að grípa í.

Hér snýst allt um að reyna að láta lægri spil koma í stað hærri spila því sá leikmaður sigrar sem stendur uppi með fæst stig þegar spilinu lýkur. Leikmenn giska á hvort næsta spil í spilastokknum sé hærra eða lægra en spilið sem liggur fyrir.

Það þarf því að stóla dálítið á heppnina en liturinn skiptir líka máli og þar kemur taktíkin sterk inn. Þá er ekkert annað að gera en krossa putta og vona að heppnin sé með þér í liði en vera líka vakandi fyrir því að þú getir haft einhver áhrif á útkomuna.

Giskaðirðu rétt eða siturðu í súpunni?

Giskaðirðu rétt eða siturðu í súpunni?

HILO er einfalt og reglurnar líka. Leikmenn raða spilunum á hvolf fyrir framan sig, 3*3. Hver leikmaður giskar hvort næsta spil verði lægra eða hærra en það sem snýr upp. Ef hann hefur rétt fyrir sér heldur hann áfram og giskar á næsta spil. Ef hann hefur rangt fyrir sér fær næsti leikmaður að gera.

Liturinn skiptir líka máli því ef þrjú spil í sama lit mynda heila röð, skáröð eða dálk, má leikmaðurinn taka þau öll út í einu. Það gæti því borgað sig að halda í hátt spil til að reyna að ná heilli litaröð.

Spilinu lýkur þegar einhver leikmannanna hefur farið yfir 100 stig. Sá sem er með fæst stig í leikslok vinnur.

Tilvalið fyrir fjölskylduna og vinahópinn

Tilvalið fyrir fjölskylduna og vinahópinn

Fyrir 8 ára og eldri
Fjöldi leikmanna: 2-6
Spilatími: 30 mínútur