Ný verslun í Hafnarfirði - A4 | A4.is

Ný og stærri verslun í Firðinum

Ný og stærri verslun í Firðinum

Við erum afar ánægð að tilkynna að verslun okkar í Hafnarfirði hefur nú flutt! Nú finnið þið okkur í Firðinum í Hafnarfirði, en við höfum á móti lokað verslun okkar í Helluhrauni.

Flutningarnir hafa verið einstaklega skemmtilegt og lærdómsríkt ferli. Með þessari breytingu stækkum við verslunina mikið og getum boðið upp á enn betra og fjölbreyttara úrval af vörum fyrir okkar frábæru viðskiptavini í Hafnarfirði.

Við viljum jafnframt færa starfsfólki okkar innilegar þakkir fyrir ómetanlegt starf við uppsetningu og undirbúning, án þeirra hefði þetta ekki verið mögulegt.

Verið hjartanlega velkomin í Fjörðinn – við hlökkum til að taka á móti ykkur!