Hér skiptir góð samvinna miklu máli! Leikmenn leggja saman sexhyrndar flísar til að skapa fallegt landslag og reyna að uppfylla pantanir sem beðið er um. Á sama tíma eru lagðir teinar og ár, eins langt og hægt er, en það þarf líka að hugsa um fánana sem gefa stig í lokin. Spilið er svokallað campaign-spil, svo það þróast smám saman á milli spila en er endurstillanlegt frá upphafi. Stigin sem leikmenn fá í hverju spili er hægt að nota til að opna kassa sem fylgja með til að fá nýjar flísar og ný verkefni sem gerir leikmönnum kleift að fá fleiri og fleiri stig.