















Lýsing
Four®Sure 44 frá Four Design
Hönnuðir: Strand+Hvass
Stóllinn er hannaður af Stand&Hvass fyrir Ocee&Four Design og er meðlimur úr Four®Sure fjölskyldunni.
Vel útfærð hönnunin í Four®Sure 44 dregur fram hönnunarlínur stólsins og leyfir þeim að njóta sín.
FourSure44 stóllinn frá Ocee&Four Design þjónar vel hlutverki sínu hvort sem er í fundarherbergi, fyrirlestrarsal, matsal, kaffistofunni eða sem gestastóll til að nefna dæmi.
Four®Sure 44 er fáanlegur í mörgum útgáfum, þar á meðal lit skelja, margar áklæðistegundir, með járn- eða viðarfótum, mismunandi liti á fætur og tvær gerðir arma.
Skelin er fáanleg í 13 mismunandi litum: Hvít, svört og dökkgrá eru standard litir en aðrir 10 litir fást gegn viðbótargjaldi.
Svartir og dökkgráir stólar eru með EU-Ecolabel vottun.
Skelina er hægt að fá með bólstruðu sæti eða heilbólstraðan að innan. Margar áklæðistegundir og litir í boði.
Járnfætur er hægt að fá í sama lit og skeljar: Króm, svart, hvít, dökkgrá sem standard litir en 11 aðrir litir í boði gegn viðbótargjaldi
Viðarfætur koma standard með möttum eikarfótum eða olíubornum eikarfótum. Einnig er grindin fáanleg svartbæsuð eða svartlökkuð gegn viðbótargjaldi.
Four®Sure 44 með járnfótum er staflanlegur stóll en Four®Sure 44 með viðarfótum er ekki staflanlegur. Stóllinn getur staflast 12 saman á gólfi og 10 saman á gólfi ef setan er bólstruð.
Hægt er að fá sérstaka stólavagna sem taka allt að 28 óbólstraða stóla.
Umhverfisupplýsingar vörunnar uppfylla kröfur fyrir LEED, BREEAM, WELL og SKA byggingarvottanir.
Vottanir: EU-Ecolabel, EN 16139:2013 - L2 - EN 1022:2005 - EN 1021 - 1:2006 - AFPS GS 2019:01 PAK - ANSI/BIFMA X5.1-2017
Ocee&Four Design er ISO 14001 og ISO 9001 vottað fyrirtæki
Ocee&Four Design er FSC vottað fyrirtæki (FSC-C161956)
Framleiðandi: Ocee&Four Design
Ábyrgð: 25 ár gegn framleiðslugöllum
Vöruna er hægt að skoða og prófa í sýningarsal okkar í Skeifunni 17.
Komdu til okkar í Skeifuna 17 og fáðu nánari upplýsingar eða sendu okkur póst á husgogn@a4.is og við svörum um hæl.
Eiginleikar
General
Framleiðandi
Ocee & Four Design
Undirflokkur
Fjölnota stólar
