FourMe44 fundarstóll, plastskel með eða án bólstrunar, 4-fóta stálfætur | Ocee & Four Design | A4.is

FourMe44 fundarstóll, plastskel með eða án bólstrunar, 4-fóta stálfætur

FOUR43000B02

Ocee & Four Design

Four®Me 44 er glæsileg hönnun frá Ocee & Four Design sem færir hlýleika og heimilislegan brag í hverskonar rými.

Stóllinn er hannaður af Stand&Hvass fyrir Ocee & Four Design og er meðlimur úr Four®Sure fjölskyldunni.

FourMe® 44 er glæsilegur og tímalaus fundarstóll sem sameinar klassískan sjarma og nútímalega hlýju. Þessi stílhreini fundarstóll er með plastskel sem er styrkt með afgangstrefjum úr evrópskum timbri. Mjúkt yfirborð hans færir heimilislegan blæ í almenningsrými og segja má að hver stóll fái einstakt útlit þar sem timburkurlið blandast plastinu á ólíkan hátt.

Four®Me 44 er fáanlegur óbólstraður, með bólstraðri setu, bólstraður.að innan eða heilbólstraður. Fjölbreytt úrval af áklæðum og litum í mörgum verðflokkum.

Skel er fáanleg í fjórum mismunandi litum:  Grá (NCS S 2502-y), dökkgrá (RAL7015), svört (NCS S 9000-n) og ljósblá (NCS S 4020-b).

Fætur  fást í fjórum litum: Svart (RAL7021), hvítt (RAL9010), milligrátt (RAL7039), krómaðir.

Aðrar gerðir af fótum eru í boði: Viðarfætur, stjörnufætur, 5-arma hjólakross, krabbafætur.

Framleiðandi: Ocee & Four Design

Ábyrgð: 25 ára ábyrgð gegn framleiðslugöllum.

 

Komdu til okkar í sýningarsalinn í Skeifunni 17 til að fá nánari upplýsingar eða sendu okkur línu á husgogn@a4.is og við svörum um hæl.

General

Framleiðandi

Ocee & Four Design

Undirflokkur

Hægindastólar