Enskar málfræðiæfingar B | A4.is

Enskar málfræðiæfingar B

FOR300120

Enskar málfræðiæfingar B.

Höfundur: Elísabet Gunnarsdóttir.

Lýsing: Efni ætlað byrjendum öðrum fremur en getur einnig nýst til upprifjunar í efstu bekkjum grunnskóla eða til æfinga fyrir fullorðna byrjendur. Hver kafli er þannig upp byggður að fyrst kemur regla í ramma, síðan æfingar sem stigþyngjast, og í lok bókarinnar er kunnáttupróf fyrir hvern kafla.

Efni bókarinnar: Óákveðinn og ákveðinn greinir. - Regluleg og óregluleg fleirtala. - Frumtölur og raðtölur, dagsetningar og ártöl. - Persónufornöfn, nefnifall og aukafall. - Eignarfornöfn, hliðstæð og sjálfstæð. - Hjálparsögnin "do". - Reglulegar sagnir í nútíð. - Stigbreyting lýsingarorða (-er, -est). - Próf.

Forlagið/Mál og menning, 32 bls., 1995.