Quadro flokkunarstöðvar | Cube Design | A4.is

Quadro flokkunarstöðvar

CUBVRECYCLE

Cube Design

Quadro eru fallegar og vandaðar flokkunartunnur frá Cube Design sem ekki einungis eru frábærar til að flokka úrgang heldur eru þær líka einstaklega smart. Þær koma í ýmsum stærðum, gerðum og litum og hægt er að setja þær saman eftir þínum smekk og þörfum. Þær eru fáanlegar í mismunandi breiddum; með einni, tveimur eða þremur einingum.


  • Úrval lita og útgáfa í boði
  • Fást í þremur breiddum: Með einni einingu, tveimur einingum eða þremur
  • Stöðluð kringlótt og innfelld handföng en hægt er að velja um aðrar gerðir
  • Ruslapoki er settur í grind með útdraganlegum ramma svo úrgangurinn lendir alltaf í pokanum
  • Borðflöturinn er úr harðplasti (e. compact laminated) svo hann er sterkur, þolir mikið álag og er auðvelt að þrífa og viðhalda
  • Vottanir: FSC, EU, ISO 1400
  • 10 ára framleiðsluábyrgð


Við tökum vel á móti þér í húsgagnadeild okkar í Skeifunni 17 á virkum dögum kl. 9-17 og svörum um hæl ef þú sendir tölvupóst á husgogn@a4.is.


Framleiðandi: Cube Design

General

Framleiðandi

Cube Design

Undirflokkur

Flokkunarstöð