Charlie einingarsófar, pullur og borð | A4.is

Charlie einingarsófar, pullur og borð

JHCHARLIE

Náið samstarf Johanson og Färg & Blanche heldur áfram að skila árangri og að þessu sinni í formi eininga sófa með nafninu Charlie.
„Hugmyndin að CHARLIE kemur frá Parker stólnum sem við hönnuðum fyrir Johanson fyrir nokkrum árum.
Við vorum að vinna að skissum að nýjum hugmyndum fyrir einingarsófa þegar við áttuðum okkur á því að Parker kollurinn hafði þegar lagt grunninn að alveg nýrri línu af setuhúsgögnum.
Svo einfalt var þetta!“ segja Färg & Blanche, þegar þær lýsa því hvað varð til þess að þær fóru í þessa stækkun línunnar.
Eftir nokkrar tilraunir með „mitti“, hringinn sem er aðalsmerki PARKER hönnunarinnar, var nýi sófinn tilbúinn með útliti sem passaði við útlitið á vinsæla kollinum.
Metnaðurinn með CHARLIE hefur verið að gera það mögulegt að búa til ýmsar uppsetningar sem henta mismunandi þörfum.
Núverandi lausn sameinar fjölhæfni og sveigjanleika til að tryggja að CHARLIE eigi heima í allskyns umhverfi en heldur samt sínum einstaka karakter.

Hringurinn og annað járn kemur standard í hvítu eða svört en einnig er hægt að velja úr Johanson RAL litavali gegn aukagjaldi.
Gott úrval áklæðistegunda í nokkrum verðflokkum tryggir að þú finnur fallegt áklæði sem hæfir þínum smekk og litavali.

Framleiðandi: Johanson Design
Ábyrgð: 2. ára ábyrgð gegn framleiðslugöllum

Komdu til okkar í Skeifuna 17 og fáðu nánari upplýsingar eða sendu okkur póst á husgogn@a4.is og við svörum um hæl.