Frumlegt - nútímalegt - hagnýtt | A4.is

Frumlegt - nútímalegt - hagnýtt

Frumlegt - nútímalegt - hagnýtt

Umbra er alþjóðlegt hönnunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á nútímalegum og frumlegum heimilisvörum.

Fyrirtækið var stofnað árið 1979 í Toronto, Kanada, af Les Mandelbaum og Paul Rowan en þeir félagar voru sammála um að þörf væri á nútímalegum hönnunarvörum, sem hentuðu inn á öll heimili, bæði hvað varðaði útlit og verð. Í dag fást vörur Umbra um allan heim og fyrirtækið er leiðandi í framleiðslu heimilisvara.

Hjá Umbra starfar teymi alþjóðlegra hönnuða þar sem skapandi hugsun, knúin áfram af nýsköpun, blandast inn í hversdagslega hluti sem koma við sögu í lífi okkar á hverjum degi. Meðal þess sem er að finna í vöruúrvali Umbra eru meðal annars hillur af öllum stærðum og gerðum, sápupumpur, skartgripastandar, snagar og snagahengi og ýmsar skipulagshirslur t.d. undir snyrtivörur og krydd.

Buddy er skemmtileg lína frá Umbra þar sem lítill félagi, eða nokkrir vinir saman passa upp á heyrnartólin, halda utan um eldhúsrúlluna eða standa vörð um servíetturnar.

Umbra framleiðir mikið úrval af hirslum sem passa til dæmis fullkomlega undir snyrtivörurnar.

Í vöruúrvali Umbra má finna mikið úrval af vönduðum vörum fyrir eldhús og baðherbergi.