Hugur, hjarta og hendur vinna saman | A4.is

Hugur, hjarta og hendur vinna saman

Hugur, hjarta og hendur vinna saman

Ravensburger hefur framleitt vönduð púsluspil, borðspil og ýmsa leiki og bækur fyrir börn í meira en eina öld. Það er fyrir löngu orðið þekkt fyrir vandaðar vörur sínar og nýstárlega hönnun sem bæði vekur áhuga og er hvetjandi fyrir fólk á öllum aldri.

Saga Ravensburger nær aftur til ársins 1883 þegar Otto Maier, bókbindari frá Ravensburg í Þýskalandi, byrjaði að búa til borðspil meðfram vinnu sinni. Ári síðar var hann búinn að stofna sitt eigið forlag sem síðar átti eftir að verða Ravensburger.

Til að byrja með sérhæfði fyrirtækið sig í að framleiða borðspil en fljótlega fór vöruúrvalið stækkandi með fræðslubókum, borðspilum og leikföngum. Maier hafði mikinn áhuga á þeim fræðum sem segja að börn læri með því að gera og að höfuð, hjarta og hendur vinni saman. Það sést vel á vörum Ravensburger sem ýta undir skemmtun, fræðslu og þroska.

Fræðandi og skemmtilegt

Fræðandi og skemmtilegt

Fyrsta spilið frá Ravensburger, Journey Around the World, kom út árið 1884 en það byggði á bók Jules Vern, Around the World in 80 Days. Árið 1891 kom svo fyrsta púsluspilið frá Ravensburger á markað, landafræðipúsl sem gert var úr tré.

Hugmyndin að því spratt út frá löngun framleiðandans til að skapa fræðandi vöru sem myndi kenna ungum börnum landafræði en auk þess hjálpaði trépúslið börnum að samræma hreyfingar handa og augna, þekkja form og þjálfa fínhreyfingar. Enn þann dag í dag má sjá þessa hugmynd í mörgum trépúslum fyrir börn þar sem þau eiga að raða saman formum sem skorin eru út í tré.

Fyrsta púsluspilið sem Ravensburger framleiddi úr pappa kom út árið 1964 og var 500 bita púsl. Þrettán árum síðar gaf fyrirtækið út 5.000 bita púsl sem var það stærsta sem hafði kom á markað fram að því.

Ravensburger gerði svo enn betur árið 2010 þegar það gaf út stærsta púsluspil heims á þeim tíma með 32.256 bitum, með 32 myndum eftir listamanninn Keith Haring. Púsluspilið var um 544 x 192 cm að stærð, vóg 19 kíló og kom á sérstökum vagni svo auðvelt væri að færa það til.

Púsl, spil og margt fleira

Púsl, spil og margt fleira

Í dag framleiðir Ravensburger meðal annars púsluspil, hefðbundin og 3D, minnis- og samstæðuspil og skemmtileg borðspil ásamt ýmsu öðru sem nýtist við kennslu og leik.

Minnis- og samstæðuspil fyrir yngstu kynslóðina hafa verið mjög vinsæl en þau þjálfa minni og einbeitingu. Ravensburger leggur mikið upp úr því að börnin hafi gaman um leið og þau þjálfa sig og læra og því prýða spjöldin skemmtilegar myndir af ýmsum persónum sem börnin þekkja. Má þar til dæmis nefna Bluey, Gurru grís og Hvolpasveitina.

Ravensburger hefur framleitt mörg vinsæl borðspil fyrir allan aldur. Funny Bunny hefur notið mikilla vinsælda, enda með eindæmum skemmtilegt fyrir alla fjölskylduna og That´s Not a Hat! er frábært partíspil. Þá eru Labyrinth-spilin sívinsæl en þar keppast leikmenn um að fara í gegnum völundarhús og safna fjársjóði um leið.

Hefðbundin púsluspil ættu allir að þekkja og hafa prófað einhvern tíma á ævinni og Ravensburger framleiðir fjöldann allan af þeim. Auk þess framleiðir fyrirtækið mikið úrval af svokölluðum 3D-púslum sem sameina hefðbundið púsl og byggingarlist. Oft eru þau einmitt í formi frægra bygginga og táknmynda á borð við Eiffelturninn í París, Big Ben í London og Colosseium í Róm.

Nýtt púsl - margar vikur í framleiðslu

Nýtt púsl - margar vikur í framleiðslu

Púsluspil Ravensburger eru fyrir löngu orðin þekkt fyrir gæði og fallegar myndir en hvert nýtt púsluspil tekur margar vikur í framleiðslu. Þau eru framleidd með svokallaðri Softclick-tækni, sem tryggir að bitarnir passi nákvæmlega saman og sitji vel fastir á sínum stað. Púslin eru búin til úr endingargóðum og þykkum pappír sem tryggir að þau eru sterk og endingargóð.

Skera þarf hvern bita á einstakan hátt svo það sé engin hætta á að rangur biti fari á rangan stað þegar verið er að púsla. Það þýðir að í þúsund bita púsli þarf að búa til þúsund mismunandi formaða bita, og hver og einn biti er handteiknaður af starfsmanni Ravensburger. Áður en púsl er svo skorið í fyrsta sinn er hver biti teiknaður í gegn á blað sem lagt er yfir lokaútkomu myndarinnar.

Málmstykki eru svo mótuð til að mynda skera sem er einungis búinn til fyrir viðkomandi púsluspil og sú vinna tekur um fjórar vikur. Skerann er aðeins hægt að nota í takmarkaðan fjölda skipta áður en skipta þarf um því hann er bara hægt að brýna einu sinni. Þegar mest er að gera í framleiðslunni fer fyrirtækið í gegnum nokkra skera á hverjum degi.

Með puttann á púlsinum

Með puttann á púlsinum

Áður en bitarnir eru skornir þarf að velja réttu myndina og mikil vinna er lögð í að vanda valið. Horft er í hvert smáatriði; út frá fegurðarsjónarmiði, áhugasviði, aldri og fleiru sem þarf að hafa í huga þegar verið er að hanna nýtt púsluspil.

Ravensburger er með rýnihópa á sínum snærum og fylgist einnig vel með samfélagsmiðlum og öðrum vettvöngum, t.d. Instagram, Etsy og Reddit, til að vera með puttann á púlsinum, sjá hvað neytendur eru að gera og hvað er nýtt í tísku og straumum og stefnum nútímasamfélags. Myndir eru líka unnar í samvinnu hönnuðar og listamanns.

Þegar búið er að líma myndina á pappa og bitarnir eru klárir, er skerinn lagður ofan á og um 1,100 tonna þungum þrýstingi beitt til að skera pappann. Vel er farið yfir hvert púsluspil og þess gætt að allt sé eins og það á að vera áður en því er pakkað.

Sjálfbærni í forgrunni

Sjálfbærni í forgrunni



Til að vernda náttúruauðlindir jarðarinnar leggur Ravensburger mikið upp úr því að framleiða vörur sem endast og margar kynslóðir fjölskyldunnar geta notið.

Helsta uppistaðan í framleiðslunni er FSC-vottaður, endurunninn pappír og pappi ásamt við sem aðallega kemur frá Evrópu.

Þá leggur fyrirtækið áherslu á að draga úr notkun á einnota plasti og auka hlut endurunnins efnis í pappír og plasti. Einnig vinnur það hörðum höndum að því að nota sjálfbærari valkosti.