
Nýtt
Birtingur og símabannið mikla - Gunnar Helgason
FOR353898
Lýsing
Um bókina
Foreldrar Birtings eru í einhverju uppeldisátaki og ætla að taka af honum símann í sumar. Þau banna honum líka að vera í tölvunni.
Það. Er. FÁRÁNLEGT!
Svo segja þau bara glottandi að hann geti keypt sér síma sjálfur ef þetta er svona hræðilegt (sem það er)!
En það er nú varla flókið að safna fyrir einum síma?! Birtingur selur dót, safnar dósum og lýgur smá … og platar smá … en svo er hann nappaður! Af bekkjarsystrum hans, Aldísi og Birtu … og þá fyrst fer allt í rugl!
Bráðfyndin saga sem er auðvelt að lesa en erfitt að leggja frá sér.
Gunnar Helgason hefur skrifað barnabækur í stórum stöflum og hlotið verðskuldað lof og verðlaun fyrir, meðal annars Íslensku bókmenntaverðlaunin og Bókaverðlaun barnanna. Teiknarinn Elías Rúni gerði flottu myndirnar í bókinni sem gera hana ennþá skemmtilegri.
Aldur: 6-12 ára
Útgefandi: Mál og menning, 2025
Eiginleikar