Bakpoki Yoomi LED, með skjá, svartur | A4.is

Bakpoki Yoomi LED, með skjá, svartur

EXPYO2302

Vertu með sérsniðin skilaboð eða mynd á þínum bakpoka! Eina sem þú þarft að gera er að hlaða niður appinu (IOS/Android) og tengja hleðslubankann sem fylgir með til að hefjast handa og láta fjörið byrja. Hægt er að velja úr GIF safni, setja inn texta eða mynd að eigin vali eða einfaldlega leyfa ímyndunaraflinu að ráða og teikna eitthvað skemmtilegt. Það er kominn tími til að sýna öðrum sköpunargáfuna þína!

Í snjallforritinu er hjólastilling sem gerir hjólreiðamönnum kleift að senda skilaboð til annarra vegfarenda þegar þeir eru á ferð með því að birta skilaboð á skjánum á töskunni. Þú getur til dæmis látið vita hvort þú sért að fara að beygja til vinstri eða hægri, ef þér finnst annar hjólreiðamaður eða bílstjóri vera of nálægt þér eða látið vita að þú sért að hleypa einhverjum framhjá þér.

  • 10.0000 mAh hleðslubanki fylgir
  • Hólf fyrir bæði fartölvu og spjaldtölvu
  • Vasi á hliðinni fyrir vatnsflösku
  • Vatnsfráhrindandi efni
  • 64x64 upplausn á skjá