Abstracta Stitch gólfskilrúm | A4.is

Abstracta Stitch gólfskilrúm

ABSSTICHTGOLF

Stitch Floor Screen

Stitch Floor Screen er glæsilegt og hljóðdemprandi gólfskilrúm frá sænska hönnunarfyrirtækinu Abstracta. Hönnuður er hinn þekkti Stefan Borselius.

Stitch er öðruvísi í útliti. Þorir þú að vera öðruvísi?

Stitch Floor Screen er hljóðgleypandi gólfskilrúm sem hjálpar til við að skapa rólegra og einbeittara vinnuumhverfi. Hlýleg áferð, vönduð efnisvinna og einkennandi saumað netmynstur gefa skilrúminu hlýjan og áreiðanlegan karakter. Nátúrlegir viðarfætur bæta við skandinavískum hönnunarblæ og skapa hlýlegt jafnvægi við nútímalegt vinnurými

Stitch er kjörin lausn fyrir opin vinnurými og heimaskrifstofur þar sem mikilvægt er að draga úr truflunum, auka næði og skapa hlýlega og faglega stemningu við vinnuborðið.

Stærðir í boði:

810x1540x85

1060x1540x85

1310x1540x85

Áklæði í boði: Salsa, Marbela og Hallingdal 65

 

Vottanir: Möbelfakta, EN1023, BS5852:Part1, ISO105-B02:5-6, ISO16000-3&-6

Framleiðandi: Abstracta

Ábyrgð: 5 ár gegn framleiðslugöllum

 

Komdu til okkar í sýningarsalinn í Skeifunni 17 til að fá nánari upplýsingar eða sendu okkur línu á husgogn@a4.is og við svörum um hæl.