Steelcase Please | A4.is

Please - einstakur stóll

Please - einstakur stóll

Please frá Steelcase er skrifborðsstóll sem er þekktur fyrir einstaka hönnun og þægindi, sérstaklega fyrir þau sem sitja lengi við vinnu. Stóllinn hefur lengi verið einn sá vinsælasti í Evrópu, og skyldi engan undra sem hefur prófað hann.

Stóllinn er með LTC²-tækni sem gerir það að verkum að sérstakur og samstilltur veltibúnaður með tveimur aðskildum stuðningsflötum í bakinu veitir tvískiptan stuðning, þ.e. fyrir efra bak annars vegar og neðra bak hins vegar. Það tryggir að vel fari um þig, hversu lengi sem þú situr og hvar sem er.

Steelcase lagðist í rannsóknarvinnu áður en hafist var handa við hönnun stólsins og stóllinn hermir eftir hreyfingu hryggsins þegar skipt er um líkamsstöðu. Hvort sem þú kýst að sitja með beint bak eða í afslappaðri, hallandi stöðu, mun Please sjá til þess að vel fari um þig.

Image of product image 0
249.990 kr
  • Vefur
  • Verslanir
Image of product image 0
238.990 kr
  • Vefur
  • Verslanir
Image of product image 0
272.990 kr
  • Vefur
  • Verslanir

Áhersla lögð á mismunandi þarfir

Áhersla lögð á mismunandi þarfir

Mörg eyðum við um 75.000 klukkustundum af ævi okkar í að sitja á skrifstofunni. Það er því mikilvægt að stóllinn sem setið er á sé vandaður og veiti líkamanum góðan stuðning þegar hann hreyfist, stuðli að hreyfingu og sé þægilegur þegar setið er lengi við vinnu. Auk þess þurfa skrifborðsstólar að koma til móts við ólíkar þarfir og mismunandi líkamsbyggingu fólks.

Steelcase byggir hönnun sína og framleiðslu skrifborðsstóla á rannsóknum sem fyrirtækið lætur framkvæma til að öðlast skilning á líkamsstöðu og hreyfingum notenda. Hryggurinn hreyfist ekki sem ein heild heldur hreyfist efra og neðra svæði hans hvort í sínu lagi, þ.e. sjálfstætt. Þegar efsti hluti hryggjarins hallar aftur, kemur fetta á neðsta hluta hans fram á við.

Við hreyfum okkur öll á ólíkan hátt og rétt eins og fingrafar er hreyfing hryggjarins einstaklingsbundin og breytist reglulega eftir því hver líkamsstaðan er. Efra bak og neðra bak krefjast ólíks stuðnings á allan hátt og það hefur Steelcase að leiðarljósi við hönnun skrifborðsstóla.

CarbonNeutral® vottun í í boði

CarbonNeutral® vottun í í boði

Please er nú fáanlegur með CarbonNeutral® vöruvottunarmöguleika sem er viðurkennd staðfesting á því að vara, þjónusta, fyrirtæki eða verkefni hafi náð að verða kolefnishlutlaus. Þannig hefur kolefnislosunin sem tengist framleiðslu eða rekstri verið mæld, dregið eins mikið úr henni og hægt er og sú sem eftir stendur er jöfnuð með kolefnisjöfnun.

Með kaupum á hverjum Please-stól jafngildir kolefnislosunin sem Steelcase jafnar 410 kílómetra sem bensínknúinn meðalbíll ekur samkvæmt upplýsingum frá EPA Greenhouse Gas Equivalance Calculator.

Sjálfbærni og umhverfisvernd

Sjálfbærni og umhverfisvernd

Steelcase leggur áherslu á að vinna að betri framtíð fyrir jörðina með því að hanna og framleiða vörur með virðingu fyrir náttúrunni á sama tíma og það hjálpar til við að endurheimta auðlindir hennar. Það gerir fyrirtækið með því að:

Minnka kolefnisspor sitt
Hanna fyrir hringrás
Velja og nota efni á ábyrgan hátt

Please er með staðfesta EPD-yfirlýsingu (e. Environmental Product Declaration) frá þriðja aðila, um fullkomið gagnsæi umhverfisáhrifa á vistfræðilegt umhverfi. Þá hefur stóllinn hlotið BIFMA LEVEL® 3 vottun og vottun á loftgæðum innandyra frá Scientific Cetrification Systems Indoor Advantage™ Gold.

Viðgerðarþjónusta okkar

Viðgerðarþjónusta okkar

Okkur hjá A4 er annt um umhverfið og við bjóðum upp á viðgerðarþjónustu fyrir allar þær tegundir af stólum sem við seljum. Með því að gera við stól, í stað þess að henda honum, framlengir þú bæði líftíma stólsins og minnkar sóun.

Viðgerðarþjónustan okkar er staðsett á Köllunarklettsvegi 10 í Reykjavík og er opin alla virka daga frá klukkan 08:00-16:00.

Gesture-stólinn, ásamt öðrum stólum frá Steelcase, EFG og Savo, getur þú prófað hjá okkur í sýningarsal húsgagna í Skeifunni 17. Opið er alla virka daga frá klukkan 09:00-17:00.