Húsgögn frá FourDesign
Danska fyrirtækið Four Design var stofnað árið 1990. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á umhverfisþáttinn í framleiðslu sinni og er markmiðið að öll húsgögn verði að minnsta kosti 95% endurvinnanleg. Að auki vinnur fyrirtækið eftir ISO 14001 og ISO 9001 stuðlunum sem eru ströngustu mögulegu umhverfisstuðlar varðandi húsgagnaframleiðslu. Fjölbreytt húsgagnaflóra fyrirtækisins hentar vel fyrir vinnustaði, skóla og stofnanir. Úrvalið af stólum, sófum og borðum er einstakt og að auki býður Four Design fjölda lausna þegar kemur að næðissvæðum, fyrirlestrarsölum og útisvæðum. FourCast One stóllinn er ein þekktasta vara fyrirtækisins en hann var frumsýndur árið 2006 og sló strax í gegn. Í kjölfarið hófst útrás fyrirtækisins sem ekki sér fyrir endann á.
Hægt er að nálgast bæklinga frá FourDesign með því að smella hér
Harc Tub stólinn kemur með háu og lágu baki – á snúngs- og sleðafótum. Áklæðaúrvalið er mjög mikið og litaútval svo til takmarkalaust
FourUs sófann er hægt að fá í nokkrum útgáfum, hér er hann eins og hellir – enda heitir þessi útgáfa Cave. Frábær og einföld lausn til að búa til fundarherbergi t.d. á göngum og í rýmum sem annars nýtast illa.
Four Design Wallpod
Four Design Wallpod
FourUs Wallpod er fullkomin lausn sem lendingarsvæði fyrir vinnusvæði eða bara til að fá næði og tala í símann án truflana. FourUs Wallpod tekur mjög lítið pláss og er því tilvalin lausn til að skapa vinnupláss á áður ónýttu svæði.
Four Design Booth
Four Design Booth
Four Design Booth er fjölnota rými til að hittast og slaka á, einbeita sér eða til að nota sem fundarherbergi. Four Design Booth veitir næði og skapar hljóðvist og er því sannkallaður griðarstaður í opnu rými.
Four Design Fabricks
Four Design Fabricks
Four Design Fabricks eru hljóðeinangrandi kubbar sem eru hannaðir til þess að skipta upp rými og draga úr hávaða. Þessi skemmtilega lausn býður upp á sveigjanleika til að breyta opnum rýmum á augnabliki og er því frábær lausn fyrir síbreytilega teymisvinnu.
Four Design Den
Four Design Den
Den er frábært hávaðavarið vinnuathvarf, sem aðskilur starfsmannin vel frá þeim hávaða sem getur skapast í opnum rýmum. Hægt er að fá vinnustöðina í mörgum útfærslum og með lausnum fyrir tæknibúnað og rafmagn.
FourSure kemur í 11 litum og hægt er að fá skelina óbólstraða, með bólstraðri setu eins og hér, bólstraða alveg að innan og heilbólstraða. Margar útfærslur á fótum eru líka fáanlegar og má segja að einn stóll sé heil fjölskylda af stólum þegar allar útfærslurnar eru komnar saman. Fallegur, léttur og elegant.
FourSure77 á 4 hjólum er einstaklega léttur og meðfærilegur staflanlegur stóll
FourCast stóllinn er fáanlegur með plast og viðarskeljum. Hér er bætt við gripgati á bakið svo auðvelt er að lyfta honum upp og hengja undir borðið. Það auðveldar svo sannarlega öll þrif.