(2018) Þjóðhagfræði - Þórunn Klem. - Skiptibók | A4.is

(2018) Þjóðhagfræði - Þórunn Klem. - Skiptibók

NOT800232

Notuð bók - Skiptibók

Í Þjóðhagfræði er farið ítarlega yfir helstu hugtök og kenningar í hagfræði, sögu hagfræðinnar og helstu kenningasmiði. Bókin er prýdd ýmsu myndefni, bæði ljósmyndum, gröfum, töflum og línuritum eftir því sem við á, og hverjum kafla fylgja verkefni. Að auki eru í bókinni íslenskur hugtakalisti og íslensk-enskur orðalisti.
Þjóðhagfræði kom fyrst út árið 2008 en birtist hér í endurskoðaðri útgáfu. Bókin er ítarlegt rit um þjóðhagfræði á íslensku, skrifuð á aðgengilegan og læsilegan hátt og hentar vel til kennslu í fyrstu áföngum framhaldsskóla, sem og undanfari háskólanáms í hagfræði. Bókin nýtist einnig vel öllu áhugafólki um þjóðhagfræði.
Höfundur bókarinnar, Þórunn Klemenzdóttir, hefur kennt þjóðhagfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð um árabil.

Höfundur: Þórunn Klemenzdóttir

Útgefandi: Mál og menning 2018