(2007) Lovestar - kilja | A4.is

(2007) Lovestar - kilja

FOR328636

Lovestar - kilja.

Höfundar: Andri Snær Magnason.

Lýsing: Alþjóðlega stórfyrirtækið LoveStar hefur komið Íslandi á heimskortið – markaðssett dauðann, komið skipulagi á ástina og reist stórfenglegasta skemmtigarð sögunnar í Öxnadal þar sem LoveStar blikkar á bak við ský. Indriði og Sigríður eru handfrjálsir einstaklingar í þessu hátæknivædda samfélagi. Þau telja sig hafa fundið ástina upp á eigin spýtur þar til hræðilegt bréf berst frá stórveldinu. Á sama tíma er LoveStar sjálfur um það bil að gera stærstu uppgötvun allra tíma og stemningsdeildin hefur stórfenglegar áætlanir um hvernig megi fullkomna LoveStar veldið. Og tíminn er naumur …

Skáldsagan LoveStar eftir Andra Snæ Magnason (2002) var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hún hlaut bæði Menningarverðlaun DV í bókmenntum og Bókaverðlaun starfsfólks bókaverslana.

Útgefandi: Forlagið/MM, 2007.