Bow 4-fóta stóll, bólstruð seta, bólstrað bak eða viðarbak
EFGVEFBOW
Lýsing
Bow frá EFG.
Hönnuður: Jonas Forsman
Stóll 4-fóta án arma
Bow – er fjölhæfur stóll sem hentar við margvíslegar aðstæður. Bow sameinar skandinavískan stíl við þægindi og sjálfbærni. Bow hefur algjörlega aðskiljanlega hönnun þar sem sætisgrind og bak sameinast með gormstáli. Það veitir skemmtilegan sveigjanleika í bakinu og stuðlar að virkri setu sem gerir það líka þægilegra að sitja í lengri tíma. Bow fæst með bólstraðri setu og bólstruðu baki eða með fallegu trébaki, og fæst með eða án arma. Bæði afbrigðin eru staflanleg og möguleiki á sérstöku tengi, t.d. fyrir ráðstefnusali. Stóll með örmum gefur upphengimöguleika á borðbrún til að auðvelda dagleg þrif.
Sæti og bak eru tengd saman með gormstálhlutum eins og áður segir. Fætur og neðri hluti grindarinnar eru úr Ø19 mm stálrörum en grindin fyrir ofan sæti er úr Ø16 mm stálrörum. Sætisplatan er með kjarna úr lamineruðum viði, klædd svampi og bólstruð. Bakplatan er ýmist viði eða er bólstruð. Armar eru gerðir úr samblöndu af 40% viði og 60% PP plasti.
Helstu mál:
Hæð: 830 mm
Vídd: 500 mm
Dýpt: 560 mm
Hæð sætis: 480 mm
Sethæð (með þunga)*: 440 mm
Setdýpt: 440 mm
Seta, vídd x dýpt: 430x440 mm
Bak, vídd x hæð: 450x390 mm
Tengjanlegur: Já (aukahlutur)
Staflanleiki: 8 með bólstruðu baki, 10 með viðarbaki. ATH: Til að vernda áklæði við stöflun er hægt að kaupa sérstaka púða undir stólinn (aukahlutur)
Stólavagn: Já, tekur 8 stóla max (aukahlutur)
*Sethæð með þunga skv. EN 1335-1:2020
Viðarbak: Hvíttaður askur (A2), svartsteindur askur (AS) eða eik (E5).
Áklæði: Fjölmargar áklæðistegundir og litir eru í boði í mismunandi verðflokkum.
Vottanir: Möbelfakta, EN 16139:2013
EFG er ISO 9001 og ISO 14001 vottað fyrirtæki
EFG er FSC vottað fyrirtæki (FSC-C009111)
5 ára ábyrgð gagnvart framleiðslugöllum.
Framleiðandi: EFG
Komdu til okkar í Skeifuna 17 og fáðu nánari upplýsingar eða sendu okkur póst á husgogn@a4.is og við svörum um hæl.