
A4 styrkir menntatæknifyrirtækið Mussila

A4 er eitt þriggja íslenskra fyrirtækja sem styrkja menntatæknifyrirtækið Mussila til að gefa út og veita þjóðinni ókeypis aðgang að íslenska lestrar- og málörvunarforritinu Orðalykli. Að styrkveitingunni standa einnig Mjólkursamsalan og Hagkaup. Mussila hlaut jafnframt styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála á vegum félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins til að gera Orðalykilinn að veruleika.
Lestrar- og málörvunarforritið Orðalykill kennir undirstöðuþætti lesturs og læsis og nýtir Mussila sér kjarnalausnir íslensku máltækniáætlunarinnar til að þróa forritið. Höfundar þess eru talmeinafræðingarnir Ásthildur Bj. Snorradóttir og Bjartey Sigurðardóttir ásamt Mussila ehf.



Orðalykillinn er aðgengilegur á öllum helstu snjalltækjum, bæði til að nota heima og í skólum landsins, öllum að kostnaðarlausu. Um er að ræða gagnvirka kennslulausn sem ýtir undir snemmtæka íhlutun, málörvun og læsi. Orðalykillinn mun nýtast öllum börnum til að læra að lesa og skilja íslensku; aðfluttum Íslendingum með erlendan uppruna, íslenskum börnum sem búa erlendis og öllum öðrum sem vilja læra okkar ástkæra og ylhýra tungumál.
Viðtökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum og á aðeins nokkrum dögum hafa yfir 10.000 einstaklingar náð í forritið.